Nú er komin dagsetning fyrir stofnfrumumeðferðina mína og við erum byrjuð að undirbúa okkur enda förum við á miðvikudaginn og
við erum að fara til Los Angeles!
Við höfum aldrei farið til Bandaríkjanna og að ferðast þangað krefst ákveðins undibúnings því það þarf að sækja um ferðaheimild fyrir alla og einnig dvalarumsókn.
Sjúkratryggingaskirteini þurfa að vera í gildi ásamt auðvitað vegabréfin.
Einnig þurfti ég og pabbi hennar Alexöndru að fylla út form þar sem hann veitir mér leyfi til að ferðast með barnið okkar.
Áður en ég byrjaði að pakka í töskur þá gerði ég lista.
Lista yfir það sem þarf að gera og versla áður en við förum. Margir gera þau mistök að taka allt of lítið með sér út því ætlunin sé að versla allt sem til þarf fyrir ferðina. Basic hluti er ávallt gott að vera búin að versla áður en haldið er af stað. Ég ætla að setja pökkunar listann minn hér og það sem ég vil hafa með mér.
Pökkunarlistinn minn:
Lyf
Vegabréf
Hleðslutæki fyrir símann
Hleðslubankann
Sótthreinsiklúta til að þrífa borðin okkar í flugvélinni(vitum ekkert hvað margar bleyju skiptingar voru gerðar á borðunum okkar)
Eyrnatappa
Headset
Millistykki með 4 tenglum
USA kló
Fötin mín:
Ætla að sýna ykkur dæmi af flíkum frá Curvy.is
1x svartar gallabuxur — Sjá Hér
1x svartan hlýrabol — Hér
1x stuttbuxur —Hér
1x skyrtukjól —Hér
1x hjólabuxur innan undir kjólinn —Hér
Sundbol —Hér
Ég er að verða tilbúin fyrir ferðina og er að springa úr tilhlökkun því þetta er svo mikilvæg ferð… Vonin um betri lífsgæði er svo mikil með þessari ferð.
Endilega fylgist með á SnapChat. Ég mun vera dugleg að sýna frá ferðinni þar.
Sjáumst…